|

Á Breiðabólstað býr sagan við hverja þúfu og sækir fjöldi fólks staðinn heim á hverju ári, einkum til að skoða kirkjuna, heyra sögu hennar og þeirra sem Staðinn hafa setið í aldanna rás. Kirkja hefur verið á staðnum síðan um 1070 og skartar hann nú fallegri krosskirkju, teiknaðri af Rögnvaldi Ólafssyni, vígðri 1912.
Margir nafntogaðir prestar hafa setið staðinn og mætti nefna sr. Jón helga Ögmundsson, sr. Högna Sigurðsson (oft nefndur Presta-Högni) en hann átti miklu barnaláni að fagna, eignaðist 9 dætur og 8 syni sem allir urðu prestar. Sr.Tómas Sæmundsson, Fjölnismaður, er e.t.v. frægastur þeirra sem staðinn hafa setið, a.m.k. í seinni tíð, og stendur minnisvarði gríðarþungur sem Fjölnismenn gáfu, í kirkjugarðinum á Breiðabólstað og haggast ekki nema í hinum öflugu Suðurlandsjarðskjálftum, snýst þá jafnan hálfhring. Núverandi prestur og staðarhaldari á Breiðabólstað er sr. Önundur S. Björnsson.
|