|

Breiðabólstaður, í daglegu tali kallaður Staðurinn er kirkjustaður, á fallegum stað í Fljótshlíðinni um 4 km frá Hvolsvelli við veg 261. Á Breiðabólstað er gistiskáli fyrir 22 manns.
Þar er kjörinn áfangastaður fyrir ferðamenn á leið í Þórsmörk, Emstrur eða inn á Einhyrningsflatir, stutt í Tindfjöllin og hálendið allt.
Nægur hagi fyrir ferðahross. Skemmtilegar gönguleiðir eru í nágrenninu, stutt í Njálusetrið á Hvolsvelli og Byggðasafnið á Skógum.
Staðarhaldarar eru Önundur Björnsson og Harpa Viðarsdóttir
|